top of page

Valdagskrá Landsmóts

Yfirlit yfir dagskrármöguleika

 

Kæri skátaflokkur!

 

Við vitum að þið eruð mjög spennt fyrir landsmóti. Landsmót er staðurinn þar sem allir skátar landsins hittast og lenda í ævintýrum saman. Landsmót er líka staðurinn þar sem maður fær tækifæri til að kynnast útlenskum ofurhugum, láta birkiilminn svæfa sig í tjaldinu sínu, smakka alls kyns skringilegheit frá framandi löndum, elda sjálfur og taka þátt í æsispennandi dagskrá. Það er þessi æsispennandi dagskrá sem er í brennideplinum í þessu riti. Við viljum nefnilega að þið fáið að ráða sjálf hvað þið takið ykkur fyrir hendur!

 

Dagskráin er margþætt. Kvölddagskráin er fjölbreytt og dagskráin á sviðinu töfrandi. Í þessu riti ætlum við að kynna fyrir ykkur dagskrána sem þið getið valið um. Á milli 13 og 17 dvelur þú annað hvort á dagskrártorgi eða fyrir utan mótssvæðið í útivistar- eða menningardagskrá. Dagskrártorgin eru þrjú: fortíð, nútíð og framtíð. Á torgunum er fjölbreytt dagskrá í takti við þemað á torginu, sum dagskráratriðin getur þú einfaldlega gengið í en sum þarftu að velja fyrirfram. Dagskráin utan mótssvæðis er tvenns konar. Annars vegar er útivistardagur og hins vegar Akureyrardagur. Útivistardagskráin samanstendur eingöngu af valverkefnum sem þú velur ásamt flokknum þínum. Akureyrardagskráin skiptist í þrjá hluta; sundferð, póstaleikur og valdagskrá.

 

Við hvetjum ykkur til að fara vel yfir dagskráratriðin og velja mismunandi dagskráratriði þannig að allir í flokknum fái eitthvað fyrir sitt hæfi.

 

Dagskrártorg

Fortíðin er að baki,-

lærðu af henni.

Framtíðin er framundan,

-búðu þig undir hana.

Nútíðin er núna,

-lifðu í henni!

 

Fortíð, nútíð og framtíð eru þemu dagskrártorganna þriggja. Hér á eftir fer kynning á valmöguleikunum sem þið hafið. Valmöguleikarnir taka mislangan tíma, en utan dagskrárliðarins er nóg við að vera í opnum dagskrármöguleikum torgsins. Hver flokkur velur sér þrjá valmöguleika, 1. sæti, 2. sæti og 3. sæti.

 

Fortíð 

Nútið

Framtíð

Akureyrarval

Útivistarval

Rekka- og Róverskáta Dagskrá

 

 

Landsmót skáta 2014 - Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, 110 Reykjavík

© 2013 Bandalag íslenskra skáta

bottom of page