top of page

Hér er kynnt fyrir ykkur keppnin Skátaflokkur Íslands. Hún fer fram á hinu stórfenglega Landsmóti skáta, en hægt er að vinna sér í haginn með því að æfa sig í þessum atriðum fram að móti og jafnvel næla sér í nokkur fyrirfram stig!

 

Hér verða birt æfingarverkefni frá fortíð, nútíð og framtíð. Það er engin skylda að vinna þau, en það getur komið sér vel að hafa þróað með sér heppilegustu aðferðirnar við lausn þeirra verkefna sem þar eru kynnt.

 

Ennfremur eru þrjú skilaverkefni. Það er heldur engin skylda að skila þeim inn, þið getið samt tekið þátt í keppninni á mótinu, en ef þið skilið þeim inn getið þið unnið ykkur inn 10-50 stig fyrirfram fyrir hvert skilaverkefni.

 

Auk æfinga- og skilaverkefnanna verður hér birt hugmynd að heppilegum dagskrárhring sem hjálpar flokknum að ákveða hvort og hvað hann vill æfa.

 

Ef þið hafið einhverjar spurningar, getið þið haft samband við Nönnu Guðmundsdóttur með því að senda tölvupóst á nanna@skatar.is

 

Dagsetningar

Fortíð

skil á verkefni 1. mars

Framtíð

skil á verkefni 15. apríl

Nútíð

skil á verkefni 1. júní

 

Á landsmóti

Keppnin sjálf fer fram á Landsmóti skáta, sem fram fer á Hömrum, 20.-27. júlí 2014.  Á mótinu fer hún fram í þrennu lagi:

Fyrst vinna flokkarnir verkefni á staðnum.  Þeir hafa til þess sólarhring og geta því lagt eins mikinn tíma í það og þeir kjósa.

Svo fara fram undanúrslit í hverju þorpi.  Það verður sjónarspil og gleði! Það er því um að gera að undirbúa klappstýrurnar vel!

Á föstudagskvöldinu kemur svo ljós hvaða flokkur er Skátaflokkur Íslands á hverju aldursbili.

 

Hverjir geta tekið þátt?

Keppnin fer fram í flokkum á hverju aldursbili; fálkaskátar, dróttskátar og svo rekka- og róverskátar saman. Hver flokkur má samanstanda af 5-8 skátum sem þurfa allir að vera á sama aldursbili.

 

Af hverju á ég að taka þátt?

Þú átt að taka þátt, því að það er enginn heiður meiri en sá að bera titilinn Skátaflokkur Íslands!

 

Verkefnin

Æfingaverkefnum þarf ekki að skila og það þurfa ekki endilega allir í flokknum að sérhæfa sig í hverju verkefni.

Æfingaverkefni fálkaskáta

Æfingaverkefni dróttskáta

Æfingaverkefni rekka- og róverskáta

Skilaverkefni eru valkvæð en gefa 10-50 stig hvert. Þau má nálgast hér.

Skátaflokkur Íslands

Landsmót skáta 2014 - Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, 110 Reykjavík

© 2013 Bandalag íslenskra skáta

bottom of page