
Mikilvægt er að koma sér upp eins fullkominni tjaldbúð og auðið er til að auðvelda sér lífið á meðan á mótinu stendur. Þetta krefst þekkingar á frumbyggjavinnu og þar með súrringavinnu. En ekki er bara súrrað í tjaldbúðinni. Henni þarf að halda hreinni og snyrtilegri svo ekki komi upp sjúkdómar. Og það er skátum mikilvægt að skilja við svæðið í eins góðu eða betra ásigkomulagi og komið var að því.
Matreiðsla er eitt mikilvægasta hlutverkið í tjaldbúðinni. Það þarf að vera góð aðstaða fyrir undirbúning og framreiðslu. Það þarf að hafa uppskriftir á hreinu og kaupa reglulega inn.
TJALDBÚÐARVINNA
Tjaldbúðarvinna byggist á tækni frumbyggja þar sem trönur, spýtur og öðru lauslegu er súrrað saman eftir ákveðnum reglum. Ýmislegt er hægt að útbúa til að gera lífið auðvelt. Einnig er alltaf flott að gera veglegan inngang í tjaldbúðina sem merkt er skátafélaginu, sem gerir vinum auðveldara að finna rétta tjaldbúð.
Allar skátahandbækur eru uppfullar af hugmyndum af græjum fyrir tjaldbúðina, svo nú er mál að setjast niður og skipuleggja hina fullkomnu skátatjaldbúð.
HREINLÆTI – FLOKKUN
Hreinlæti og snyrtimennska er mikilvæg þegar margir búa saman á litlu svæði í langan tíma. Því er mikilvægt að skipuleggja þetta vel. Útnefna þjónustuflokk eða -sveit fyrir hvern dag. Vaska þarf upp, safna rusli og flokka, tæma ruslafötur, útbúa fitugryfjur ofl. nauðsynlegt.
MATUR – MATREIÐSLA
Að skipuleggja matseðil, kaupa rétt inn og elda er áskorun. Gott er að æfa sig fyrir landsmótið að elda mismunandi rétti, læra á eldunargræjurnar, æfa sig að kveikja upp eld og útbúa mismunandi eldstæði. Bryti eða kokkur flokksins er í fararbroddi í þessum málum en allir hjálpast að.
Verið er að vinna að þýðingu á matreiðslubók með skemmtilegum uppskriftum sem hægt er að elda úti. Nokkrar uppskriftir birtast í Stundaglasinu, fréttabréfi mótsstjórnar.
Tjaldbúðarlíf
Landsmót skáta 2014 - Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, 110 Reykjavík
© 2013 Bandalag íslenskra skáta
