top of page

Hamrar

Staðurinn

Hamrar, útilífs- og umhverfismiðstöð skáta er fjölbreytt útivistar- og athafnasvæði þar sem lögð er áhersla á umhverfismál, ferðamál og almenna útivist með þarfir skátahreyfingarinnar og almennings í huga. Svæðið er staðsett í útjaðri Akureyrar undir hrikalegu klettabelti sem aðskilur Eyrarlandsháls og Súlur frá láglendinu við botn Eyjafjarðar.

Tjaldbúð

Skátafélögum verður skipt niður á torg og möguleiki að hafa stór tjöld í tjaldbúðinni. 

Öryggi

Það er mikilvægt að tryggja öryggi á landsmótum. Mótsstjórn leggur mikið uppúr því að öryggismál séu í forgangi. ​

Umhverfismál

Skátar, gerum okkar besta til að ganga vel um náttúruna og að gera mótið umhverfisvænt. Kynnið ykkur mjög vandlega reglur og leiðbeiningar varðandi sorpflokkun og önnur umhverfisvæn verkefni

Akureyri

Akureyri er menningar- og skólabær sem byggir á traustum grunni. Þar starfa tvö af stærri sjávarútvegsfyrirtæki landsins og ferðaþjónusta skipar sífellt hærri sess. Frá Akureyri er stutt í margar helstu náttúruperlur landsins og bærinn sjálfur er vinsæll áningastaður um lengri eða skemmri tíma. Akureyri er vinsæll ferðamannastaður og fjölmargir heimsækja bæinn ár hvert.

Landsmót skáta 2014 - Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, 110 Reykjavík

© 2013 Bandalag íslenskra skáta

bottom of page