top of page

Sjálfboðaliðar

Störf í boði

Hefur þú áhuga á að koma að undirbúningi og framkvæmd landsmót ?  Endilega settu þig í samband við landsmot@skatar.is eða í síma 550-9800.  Við leitum nú að höndum í eftirfarandi verkefni:

 

Gríðarlega mikil vinna liggur að baki undirbúningi, framkvæmd og frágangs á jafnstórum og viðamiklum viðburði og landsmót skáta er.  Því er mikilvægt að allir sem vettlingi geti valdið hjálpist að og aðstoði við undirbúning og framkvæmd mótsins - skátar eru ekki þekktir fyrir að sitja á hliðarlínunni og horfa á. 

Væntingar eru bundnar við að skátafélögin virki með sér foreldra skátanna og eldri félaga, bæði til að aðstoða félögin og einnig við mótshaldið sjálft.

Ef þú hefur áhuga á að ganga til liðs við mótsstjórn og nefndir hennar hvetjum við þig til að hafa samband við mótsstjórn með því að senda netpóst: landsmot@skatar.is



Foreldrar, vinir og áhugafólk um skemmtilega stórviðburði er einnig hvatt til að sækja um - þarna upplifum við viðburðastjórnun eins og hún gerist best.



Þá má benda eldri skátum og foreldrum er hyggjast dvelja í fjölskyldubúðum á að oft vantar aðstoð í styttri tíma meðan á mótinu stendur og margir hafa áhuga á að leggja lið nokkrar klukkustundir á dag.  Ef svo er væri gott að vita af áhuga þínum fyrir mót, endilega senda mótsstjórn póst á netfangið landsmot@skatar.is.   Nú eða mæta í Ráhúsið fljótlega við komu og láta vita af áhuga þínum.  Auk þess verður á mótinu sjálfu hægt að skrá sig á ákveðin verkefni á lista sem settur verður upp á tilkynningatöflur í fjölskyldubúðum daglega.




 

 

Landsmót skáta 2014 - Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, 110 Reykjavík

© 2013 Bandalag íslenskra skáta

bottom of page