
Fjölskyldubúðir
Fjölskyldubúðir er rótgróinn þáttur á landsmóti, að venju starfræktar sérstakar tjaldbúðir þar sem fjölskyldur skátanna og vandamenn geta sett niður tjaldið sitt, tjaldvagn eða fellihýsi og tekið þátt í landsmótsævintýrinu. Ekki þarf að tilkynna þátttöku í fjölskyldubúðum. Hægt er að dvelja í fjölskyldubúðum eins lengi og gestir óska þess.
Sérstök athygli skal vakin á því að ungmenni, skátar sem aðrir yngri en 18 ára fá ekki að dvelja í fjölskyldubúðum nema í fylgd foreldra eða forráðamanna og þarf fjölskyldan að koma saman á mótsstað.
Þátttakendur í fjölskyldubúðum annast sjálfir um matinn fyrir sig en mögulegt verður að kaupa hráefni í verslun mótsins s.s. brauð, álegg, mjólk, gos, morgunmat, pylsur, samlokur og fleira og síðan er stutt niður á Akureyri í kjörbúðir.
Dagskrá fyrir alla fjölskylduna!
Hluti af almennri dagskrá mótsins verður opin gestum fjölskyldubúða, má þar nefna opna valdagskrá, dansleiki og kvöldvökur. En ekki nóg með það, það verður einnig í boði sérstök dagskrá fyrir fjölskyldubúðagesti! Þar má nefna skipulagðar gönguferðir, kaffihús, eldun á hlóðum og margt fleira.
Gestir í fjölskyldubúðum annast sjálfir um matinn fyrir sig en mögulegt verður að kaupa hráefni í verslun mótsins s.s. brauð, álegg, mjólk, gos, morgunmat, pylsur, samlokur og fleira.
Verðskrá
Þátttökugjald í fjölskyldubúðir er kr. 3.200 fyrir 10 ára og eldri.
GISTIGJALD
Gistigjald á tjaldsvæðunum er 1.100,- krónur á mannin yfir nóttina. * Þetta gjald er fyrir alla 10 ára og eldri en þeir sem yngri eru greiða ekki neitt. Þó þurfa tjaldverðir að fá að vita af fjölda yngri vegna skýrslugerða um fjölda gistinátta á svæðinu.
*Gjaldið getur verið hærra eða lægra allt eftir því hvort um sérstakt álag eða afslætti er að ræða.
*Sérstakur skattur er nú lagður á vegna gistingar á tjaldsvæðum. Gjaldið er kr 100 pr gistieiningu þ.e. tjald, ferðavagn eða húsbíl.
Þeir sem greiða fyrir fleiri en eina nótt í einu geta fengið afslátt af gistigjaldi. Þannig að ef greitt er í einu lagi við komu á staðinn fyrir 2 nætur fæst 200,- kr. afsláttur, 400 kr. af 3 nóttum, 600,- kr. af 4 nóttum o.s.frv. Eldri borgar og öryrkjar fá 200, kr. afslátt á hverri nótt óháð fjölda gistinátta.
Gisting 10 ára og eldri 1 nótt
1.100,-kr pr. mann
Gisting 10 ára og yngri Frítt
Þvottavél 400,- pr skipti
Þvottaefni 100,- kr pr. Skipti
Þurrkari 400,- kr pr. Skipti
Aðgangur að rafmagni ** 700,-kr pr sólarhring
**Athugið að sérstök millistykki þarf í rafmagnstöflurnar og eru þau seld hjá tjaldvörðum og kosta kr. 3000-5000. Fást einnig í flestum rafvöruverslunum.
Landsmót skáta 2014 - Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, 110 Reykjavík
© 2013 Bandalag íslenskra skáta
