top of page

Á Landsmóti skáta í ár verður lög sérstök áhersla á að efla dagskrá fyrir Rekka og Róverskáta. Boðið er uppá formót sem hefst föstudaginn fyrir mót og allt mótið er boðið uppá fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.



Formótið 

Rekka og Róver formótið er innifalin í verði þátttakenda á landsmótinu, en fyrir þá sem koma einungis um helgina er verðið 20.000 krónur. Innifalið er öll dagskrá, tjaldsvæði og fæði.

 

Setning er kl. 20:30 föstudagskvöldið 20. júlí, og þá er æskilegt að þátttakendur séu búnir að koma upp tjöldum.  Athygli er vakin á því að kvöldverður á föstudegi er ekki innifalinn.

 

Varst þú búin að skrá þig á Rekka- og Róver helgina?!

 

Við erum búin að fá margar fyrirspurnir um það hvernig maður skráir sig á Rekka og Róverhelgina og erum nú búin að gera ferlið skýrara og auðveldara fyrir alla.

 

Ef þú ert búin að skrá þig á landsmót með þínu félagi þá er ekkert eftir nema að fara inn á linkinn hérna, og fylla inn umbeðnar upplýsingar.

 

Ef þú hins vegar hefur ekki tök á að vera allt landsmótið, en ætlar að koma á Rekka og Róverhelgina, þá geturðu skráð þig hér.

 



Valdagskrá

​Á þessu móti verður boðið uppá sérstaka valdagskrá hluta af mótinu. Kíktu á hvað rekka og róverskátum stendur til boða



 

 

Rekka og Róverskátar á Landsmóti skáta 

Landsmót skáta 2014 - Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, 110 Reykjavík

© 2013 Bandalag íslenskra skáta

bottom of page