top of page

Rekka- og Róverskáta Dagskrá

 

 

RR #101 - Hjólað heim að Hömrum

Erfiðleikastig: Létt, viðkomandi þarf að kunna að hjóla

Upphaf - Endir: Laugafell - Hamrar

Vegalengd: ca. 72 km (slóði - möl - malbik)

Tímalengd: 30 klst.

Verð: 0 kr.

Ekið fram Eyjafjörðinn og upp með Eyjafjarðaránni þar til komið er upp á Nýjabæjarafrétt, haldið áfram uns komið er í Laugafell. Hjól og farangur tekin af bíl og laugin könnuð. Lagt af stað á hjólum snemma morguns og haldið sömu leið tilbaka og ekin var.

 

RR #102 - 24 Tindar

Erfiðleikastig: Erfitt, gott gönguform

Upphaf - Endir: Skíðastaðir - Kjarnaskógur

Vegalengd: ca 45 km - Upphækkun: 4500 m

Lengd: 48 klst - göngutími: 30 klst.

Gisting: Lambi - skáli Ferðafélags Akureyrar

Verð: 0 kr

Ertu tindatryllt(ur)? Sigraðu tindana, hvern af öðrum og komdu tindrandi niður! Glerárdalur er stór dalur girtur háum fjöllum, þeim hæstu á Tröllaskaga. Þar af eru 10 þeirra hærri en 1400 metrar, kerling hæst um 1540 metrar. Gerárdalshringurinn liggur eftir þessum háu fjallatoppum allan hringinn umhverfis dalinn. leiðin er um 45 km. og samanlögð hækkun leiðarinnar er um 4500 metrar og lækkunin um 4800 metrar.

 

RR #103 - Gengið fram í Fjörður

Erfiðleikastig: Meðal - erfitt, gönguform

Upphaf - Endir: Sker /eyðibýli - Hvalvatnsfjörður

Vegalengd: ca 34 km

Lengd: 48 klst - göngutími: 20 klst.

Verð: 4000 kr

Gengið frá Skeri, eyðibýli norðan Grenivíkur um Refárskarð og niður í Þverár- eða Bakkadal (eftir aðstæðum). Gengið fram dalina að fjöruborði. Gist við fjörubakkann og morguninn eftir er nýttur í að kanna umhverfið - Botnsúlur / Nykurtjörn og Hvalvatn. Sótt í Hvalvatnsfjörð að morgni.

 

RR #104 - Hart í bak

Erfiðleikastig: Létt - sundkunnátta

Upphaf - Endir: Hoffmansbryggja - Hoffmansbryggja

Vegalengd: 44 sjómílur

Lengd: 26 klst - göngutími: 20 klst.

Gisting: Tjaldstæði við sundlaug

Verð: ?? kr

Farið með Paradís, seglbát siglingaklúbbsins Nökkva til Hríseyjar. Fyrstu klst ferðarinnar fara í að kenna helstu grunnatriði siglingar og öryggisatriði um borð. Því næst haldið í norðurátt að Hrísey. Komið í Hrísey um kvöldmatarleitið og kvöldmatur eldaður. Gist í tjaldið við sundlaugina í þorpinu. Haldið af stað um morguninn þegar hafgolan hefur náð sér á strik.

 

RR #105 - Mývatnssveit - Húsavík

Erfiðleikastig: Létt - Hjólakunnátta

Upphaf - Endir: Hamrar - Hamrar

Vegalengd: Eknir 300 km og hjólaðir 40 km

Lengd: 32 klst

Verð: 21.500 kr

Ekið frá Hömrum á Mývatn - hjólað hringinn um Mývatn, viðkoma á Belgjarfjalli, Skútustöðum - gígum, Dimmuborgum, Hverfjalli, Grótargjá, Leirhnjúk, Kröflu, Víti og endað í Jarðböðunum. Tjaldað í Reykjahlíð yfir nótt, morguninn eftir er haldið áfram á Húsavík og farið í hvalaskoðun þar.

 

RR #201 -River rafting í Skagafirði

Erfiðleikastig: Meðal - sundfærni

Upphaf - Endir: Hamrar - Hamrar

Lengd: 10 klst

Verð: 15.900 kr

Farið frá Hömrum að morgni og ekið yfir í Skagafjörðin og að Bakkaflöt. Þaðan farið á vegum þess fyrirtækis sem keypt verður þjónusta af og siglt niður annað jökulfallið sem er í boði.

 

RR #203 - Safnaferð

Erfiðleikastig: Auðvelt

Upphaf - Endir: Hamrar - Hamrar

Vegalengd: 5 km

Lengd: 8 klst

Þátttakendur ganga frá Hömrum niður á Flugsafn Íslands á Akureyrarflugvelli. Að þeirri heimsókn lokinni ganga þeir áfram norður eftir Eyjafjarðarbraut að Iðnaðarsafninu á Akureyri og Mótorhjólasafninu. Fá ekki að koma heim að Hömrum fyrr en þeir hafa fengið sér ís í bænum.

 

RR #204 - Súlur + Bóndi

Erfiðleikastig: Miðlungs

Upphaf - Endir: Hamrar - Hamrar

Vegalengd: 20 km

Lengd: 10-11 klst

Verð: 0 kr

Gengið frá Hömrum upp á Súlumýrar og þaðan upp á Ytri-Súlu og svo eftir hryggnum suður að Bónda. Gengin sama leið til baka eða farið niður að Kristnesi og endað í sundi á Hrafnagili.

 

RR #205 - Sjóstangaveiði + hvalaskoðun

Erfiðleikastig: Auðveld

Upphaf - Endir: Hamrar - Hamrar

Lengd: 9 klst

Verð: 9900 kr

Farið með strætó frá Hömrum og að Árskógsströnd og þaðan út á Eyjaförð í veiði og/eða hvalaskoðun.

 

RR #206 - Hvalaskoðun á Húsavík

Erfiðleikastig: Auðvelt

Upphaf - Endir: Hamrar - Hamrar

Lengd: 8 klst

Verð: 15.500 kr

Farið með strætó á Húsavík og þar stigið um borð í hvalaskoðunarbát og hvelin skoðuð á Skjálfandaflóa. Komið við hjá Goðafossi á leiðinni.

 

RR #207 - Slökkviliðsmaður í einn dag

Erfiðleikastig: Auðvelt

Upphaf - Endir: Hamrar - Hamrar

Vegalengd: 2,5 km

Lengd: 7 klst

Þáttakendur mæta á flugvöllinn á Akureyri og hitta þar fyrir slökkvilið flugvallarins og fá hraðþjálfun í slökkvistörfum.

 

RR #208 - Hrísey

Erfiðleikastig: Auðvelt

Upphaf - Endir: Hamrar - Hamrar

Lengd: 12 klst

Verð: 3600 kr , matur ekki innifalin í verði

Farið frá Hömrum út á Árskógsströnd og ferjan Sævar flytur þátttakendur út í Hrísey. Þar má kíkja í Júllabúð, handverkshús, skoða húsin í eyjunni og enda daginn á sundi og góðum mat á Brekku.

 

RR #209 - Skot - og bogfimi

Erfiðleikastig: Auðvelt

Upphaf - Endir: Hamrar - Hamrar

Lengd: 7klst

Verð: 0 kr

Þátttakendur fá tilsögn og æfingu í bog- og skotfimi undir leiðsögn.

 

RR #210 - Hestaferð

Erfiðleikastig: Auðvelt

Upphaf - Endir: Hamrar - Hamrar

Lengd: 2 klst hestaferð heildartími 3 klukkutímar.

Verð: 8000 kr

Dagsferð á hestum um nágrennið

 

RR #211 - Siglinganámskeið

Erfiðleikastig: Auðvelt - sundfærni

Upphaf - Endir: Hamrar - Hamrar

Lengd: 7 klst x 2

Verð: auglýst nánar síðar

2 daga námskeið í siglingum hjá siglingaklúbbnum Nökkva. Þátttakendur koma sér sjálfir frá Hömrum niður á bryggju hjá Nökkva.

 

RR #212 - Bóndi í einn dag

Erfiðleikastig: Auðvelt

Upphaf - Endir: Hamrar - Hamrar

Lengd: 9 klst

Bjartur í Sumarhúsum í Sjálfstæðu fólki var styggur gamall bóndi. Nútímabændur eru miklu hressari, þó starf þeirra sé ekki létt. Hefur þú það sem þarf til að vera bóndi í einn dag? Ertu kindahvíslari? Hey, hlöður og dráttarvélar og alls konar glens.

 

RR #213 - Mývatn

Erfiðleikastig: Meðal

Upphaf - Endir: Hamrar - Hamrar

Vegalengd: Hjólað 40 km

Lengd: 12 klst

Verð: 7700 kr

Hjólað í kringum Mývatn með viðkomu á Belgjarfjalli, Skútustöðum, - gígum, Dimmuborgum, Hverfjalli og Jarðböðunum.

 

RR #301 - Fjallahjólaþraut

Erfiðleikastig: Meðal - hjólafærni

Upphaf - Endir: Hamrar - Hamrar

Lengd: ½ dagur

Verð: 0 kr

Þrumað niður hjólabrautina í Kjarnaskógi og stígarnir þar kannaðir til hlítar sem og Naustaborgirnar. Taka þarf með eigin hjól.

 

RR #302 - Hestaferð í hálfan dag

Erfiðleikastig: Auðvelt

Upphaf - Endir: Hamrar - Hamrar

Lengd: ½ dagur, 1 klst á hestbaki.

Verð: 6000 kr

Farið á hestum um nágrennið

 

RR #303 - Slysaförðun

Erfiðleikastig: Auðvelt

Upphaf - Endir: Hamrar - Hamrar

Lengd: ½ dagur

Þátttakendur læra að útbúa sár og önnur men.

 

RR #304 - Klifurveggur hjá Súlum

Erfiðleikastig: Auðvelt / Meðal

Upphaf - Endir: Hamrar - Hamrar

Klifrað í klifurveggnum hjá Súlum

 

Landsmót skáta 2014 - Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, 110 Reykjavík

© 2013 Bandalag íslenskra skáta

bottom of page