top of page

Fjölbreytt og framandi dagskrá

Í takt við tímann

Landsmót er fleira en bara böns af tjöldum og tjúlluðum skátum.  Á landsmóti er boðið upp á spennandi dagskrá sem skorar á skátann, gefur honum kost á að rækta hæfileika sína og skemmta sér stórkostlega með nýjum og gömlum vinum.  Þema mótsins í ár er Í takt við tímann sem vísar til þess að þó skátastarf hafi aldargamlar rætur þá fylgir það samt nútímanum í verkefnavali sínu.  Að auki mun dagskráin mótast af tímaflakki og tímabilum, tímaþjófar gætu skotið upp kollinum og að sjálfsögðu verður þetta algjör tímamótaviðburður!

 

Fortíð, nútíð og framtíð

Vígalegir víkingingar, nútímanördaskapur og framandi heimur framtíðarskátunar munu lita dagskrártorgin þrjú sem allir þátttakendur sækja á mótinu.  Skátarnir fara í flokkum samferða jafnöldrum sínum á hvert dagskrártorg einu sinni yfir mótið og takast þar á við ýmis konar áskoranir í takti við það tímabil sem um ræðir.  Rekkaskátar geta dundað sér að föndra úr geisladiskum við undirspil Kryddpíanna í nostalgíuhorninu á meðan fálkarnir þeytast um Kjarnaskóg í hungurleikum framtíðarinnar.  Flokkarnir eiga kost á að velja viðfangsefni innan torgsins fyrirfram auk þess að sækja sjálfir það sem vekur áhuga þeirra hverju sinni.

 

Þú átt valið!

Auk dagskrártorganna fara allir flokkarnir í valdagskrá; annars vegar útivistardagskrá og hins vegar dagskrá í menningarbælinu Akureyri.  Útivistarvalið verður við allra hæfi, hvort sem skátann dreymir um að drulla sig út í BMX-hjólabrautinni eða skoppa upp á Súlur og gista í skála yfir nótt.  Akureyrarbær verður svo nýttur til fulls og dagskránni dreift um áhugaverða staði, svo sem söfn og íþróttafélög, en auðvitað fara líka allir í sund til að skola af sér tjaldrykið og skvetta aðeins hvert á annað.

 

Opin dagskrá

Það er gaman að takast á við ævintýrin með flokknum sínum, en það getur líka verið gaman að rölta bara um einn eða með góðum vini, svo ekki sé minnst á í hópi fjölþjóðlegra jafnaldra þinna.  Þess vegna er opin dagskrá í boði í eftirmiðdeginu og á morgnana.  Hvort sem þú vilt spryeta þig á skemmtilegum fönduverkefnum, taka þátt í að slá ýmis met í Þrautalandinu eða kynnast góðgerðarstarfi og fjölmenningu í Alþjóðaþorpinu þá skaltu vera viss um að það verður nóg við að vera og þér á aldrei eftir að leiðast!

Taumlaus gleði og dásamleg dagskrá

Fyrir utan hina hefðbundnu val- og torgadagskrá verða kvöldvökurnar að sjálfsögðu á sínum stað og auk þeirra ýmsir stakir dagskrárliðir.  Hér verða nokkrir slíkir liðir kynntir.

 

Stórleikir

Í stórleikjum keppast allir íbúar skátaþorpsins okkar við að leysa alls kyns þrautir og verkefni í stórum leik.  Leikurinn er samofinn sögusviði og þema mótsins og er að auki hið besta hópefli.

 

Skátaflokkur Íslands

Hvaða skátaflokkur er nógu samheldinn, fjölhæfur, vel undirbúinn og metnaðarfullur til að geta borið titilinn Skátaflokkur Íslands?  Keppnin um skátaflokk Íslands er í þremur þrepum.  Fyrst verða send út æfingarverkefni sem búa flokkana undir þær fjölmörgu þrautir sem fyrir þá verður lagt.  Svo vinna flokkarnir sjálfstætt á meðan á mótinu stendur og safna sér stig, sem gætu dugað til að koma þeim í úrslitakeppni Skátaflokks Íslands, sem fram fer á föstudagskvöldinu.

 

Vetrar- og Sumarhátíð

Hinir almennu skátar setja upp tjaldbúð sína í tveimur þorpum; Vetrarþorpi og Sumarþorpi.  Hvert þorp um sig mun svo bjóða hinum gestum mótsins heim undir dagskrárliðunum Vetrarhátíð og Sumarhátið.  Hvert félag mætir undirbúið á mótið, með skraut, skemmtiatriði og dagskrárverkefni sem hæfa sínu þorpsþema.  Það er því ekki vitlaust að setja jólaskrautið ekki alla leiðina upp á háaloft, ef vera skyldi að þú lendir í Vetrarþorpi, og byrja strax að sníða Hawaii-skyrtuna, lendir þú í Sumarþorpi.

 

Föstudagsfjör

Á föstudagskvöldinu verður eins konar menningarnótt á Hömrum, en þá verða á boðstólnum alls kyns uppákomur, svo sem tónleikar, svefnpokabíó, uppistand, glímukeppnir og karaókí.  Skátaflokkarnir eru líka hvattir til að standa að eigin gjörningum, pop-up mörkuðum, ræðukeppnum, nuddstofum eða hvað sem þeim dettur í hug.  Allt til að gera kvöldið að stórkostlega eftirminnilegri upplifun fyrir alla, bæði skátana, foreldra, gesti og gangandi!

 

Haugur af heimboðum

Á laugardeginum bjóða skátafélögin heim með því að kynna sína byggð á hvern þann máta sem þeim dettur í hug.  Erlendir gestir okkar koma líka með ýmislegt góðgæti og gefa okkur innsýn inn í þjóðmenningu sína.  Skoskt haggis, kínversk skrautskrift og Brynju-ís er vafalaust á meðal þess sem verður á boðstólnum og dagurinn verður vafalaust einn sá eftirminnilegasti á mótinu, bæði fyrir skátana, ömmu og afa og jafnvel Hr. Ólaf Ragnar, forseta vorn, sem er vanur að láta sjá sig á skátamótum þennan dag.

Dagskrá 

Landsmót skáta 2014 - Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, 110 Reykjavík

© 2013 Bandalag íslenskra skáta

bottom of page