top of page

Skilmálar vegna Landsmóts skáta 2014

 

 

Staðfestingargjaldið 10.000.- krónur er óafturkræft og greiðist í síðasta lagi 1.febrúar2014

Með því að greiða staðfestingagjald samþykki ég eftirfarandi:

  • Að barnið sé að fara á landsmót skáta 2014
  • Að Bandalag íslenskra skáta hafi heimild til að nota þær myndir sem kunna að verða teknar af skátanum á mótinu í útgefnu efni sínu, bæði á prenti og á vef þess.
  • Skátar eru ekki tryggðir sérstaklega í skátastarfi.
  • Á mótinu gilda almenn landslög.
  • Skátalög og skátaheit skulu haldin í heiðri.
  • Áfengi og vímuefni eru ekki leyfð á meðan á móti stendur og þeir sem kunna að gerast uppvísir af notkun þeirra verður vísað tafarlaust af  mótssvæði án endurgreiðslu.
  • Landsmótsgjald skal greitt að fullu fyrir 1.maí 2014



Systkinaafsláttur er greiddur eftirá til þess sem borgaði hann og er afslátturinn á þennan veg:

Fyrsta skráða barn greiðir fullt mótsgjald næstu systkin á eftir fá endurgreitt 10% hvert af mótsgjaldi til Bandalags íslenskra Skáta.



Bandalag Íslenskra Skáta  áskilur sér rétt til að halda hluta af mótsgjaldi við eftirfarandi aðstæður:

Staðfestingargjaldi ef hætt er við þátttöku 3 mánuðum fyrir mót
50 % af mótsgjaldi, ef skátinn hættir við þátttöku  2 mánuðum fyrir mót
75 % af mótsgjaldi, ef skátinn hættir við þátttöku  30 dögum fyrir mót
100 % af mótsgjaldi, ef skátinn hættir við þátttöku  skemur en 30 dögum er í mót  



Annað:

Skátafélögin mega ekki safna mótsgjöldunum sjálf.

Ekki verður tekið á móti millifærslum einstaklinga.

Landsmót skáta 2014 - Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, 110 Reykjavík

© 2013 Bandalag íslenskra skáta

bottom of page