top of page

Útivistarval

 

Náttúran umvefur okkur með öllum sínum töfrum, hamförum og afli. Skátar elska náttúruna og útivist og á útivistardeginum gefst flokkunum kostur á að leggja land undir fót og njóta sín í náttúrunni.

Athugið að útivistardagskrá rekka er öftust.

ÚT #01 - Hringur í Naustaborgum

Aldur: fálkar, dróttskátar

Lengd: Dagskrártímabil

Naustaborgirnar er gullfallegt útivistarsvæði á milli Akureyrar og Hamra. Klappir, skógur, tjarnir og fjölbreytt náttúra þar sem er ýmislegt hægt að finna sér að gera. Göngutúr um svæðið með þrautum sem þarf að leysa.

 

ÚT #02 - Reisa skýli í skógi , eldað/grillað

Aldur: fálkar, dróttskátar

Lengd: Dagskrártímabil

Flokkurinn reisir lítið úr greinum, gerir hlóðir, kveikir eld og eldar sér einfalda máltíð. Dásamleg stund fyrir flokkinum í fögru umhverfi.

 

ÚT #03 - Klifur við Hamra

Aldur: fálkar, dróttskátar

Lengd: Dagskrártímabil

Ertu lofthrædd(ur)? Stutt ofan við Hamra eru lágar klappir, misbrattar, sem eru tilvaldar fyrir þá sem vilja prófa klettaklifur.

 

ÚT #04 - Hjólaferð: Gamli – Fjallahjólabraut

Aldur: fálkar, dróttskátar

Lengd: Dagskrártímabil

Ein skemmtilegasta fjallahjólaleið landsins liggur ofan af klöppunum ofan við Hamra, í zik-zak niður í gegnum skóg suður af þeim og svo eftir sérstakri fjallahjólabraut í gegnum Kjarnaskóg. Hægt er að hjóla( eða leiða hjólin) upp í Gamla og láta sig svo flakka af stað á hraða af eigin vali.

 

ÚT #05 - Göngutúr á flugsafnið og flugvöllinn

Aldur: fálkar, dróttskátar

Lengd: Dagur (morgun og eftirmiðdegi)

Það er stutt labb frá Hömrum og niður á Akureyrarflugvölll. Þar er Flugsafn Íslands, sem er eitt af skemmtilegri söfnum landsins með fullt af hlutum tengdum flugi að ógleymdum öllum flugvélunum, en hægt er hægt að fara í borð um margar þeirra.

 

ÚT #06 - Göngutúr: Gamli - Fálkafell

Aldur: fálkar, dróttskátar

Lengd: Dagur (morgun og eftirmiðdegi)

Hin klassíska gönguleið Akureyskra skáta. Gengið frá Hömrum upp í Gamla og ofan á klöppunum til norðurs í Fálkafell. Frábært útsýni á leiðinni. Hægt er að ganga beint á ská niður úr Fálkafelli og koma niður í Naustaborgir, þaðan sem er gengið til suðurs á Hamra aftur.

 

ÚT #07 - Hestaferð

Aldur: dróttskátar

Lengd: Dagskrártímabil

Skemmtilegur útreiðatúr þar sem skátunum gefst færi á að skoða Eyjafjörðin af hestbaki.

 

ÚT #08 - Brúarstökk

Aldur: dróttskátar

Lengd: Dagskrártímabil

Þorir þú að láta þig flakka? Láttu adrenalínið flæða um þig við að stökkva af hárri brú. Ekki fyrir lofthrædda (nema þeir vilji skora rækilega á sig!).

 

ÚT #09 - Fuglaskoðunarferð

Aldur: dróttskátar

Lengd: Dagskrártímabil

Fuglastríðið í Kjarnaskógi! Lærðu allt um fuglana sem búa í skóginum í kring um Hamra. Hver nær að koma auga á flesta fugla og nafngreina þá?

 

ÚT #10 - Veiðiferð

Aldur: dróttskátar

Lengd: Dagur (morgun og eftirmiðdagur)

Hraunsvatn í Öxnadal er undir Hraundranga. Ganga upp að því er ganga um ótrúlegt landslag og upp við vatnið er algjör fjallakyrrð. Veiði er í vatninu. Hópurinn gengur því upp að Hraunsvatni og eyðir deginum þar við veiði. Aflinn er svo eldaður á staðnum. (Hraunsvatn er um 25 km frá Akureyri. Fleiri vötn með veiði eru t.d. Ljósavatn c.a. 40 km – í átt að Húsavík og Hólavatn c.a. 30 km inn Eyjafjörð)

 

ÚT #11 - Snjóþotuferð í Hlíðarfjall

Aldur: dróttskátar

Lengd: Dagur (morgun og eftirmiðdagur)

Snjóþotur? Um mitt sumar? Endurupplifðu veturinn og skelltu þér á þotu. Hægt er að moka palla, hafa stökkkeppnir og kapprennsli.

 

ÚT #12 - Miða og skjóta

Aldur: dróttskátar

Lengd: Dagur (morgun og eftirmiðdagur)

Skotsvæði Akureyringa er á Glerárdal. Þangað er skemmtileg ganga frá Hömrum. Á skotsvæðinu er hægt að skjóta á leirdúfur og líka með riffli á skotmörk undir handleiðslu skotfélagsmanna.

 

ÚT #13 - Súlur með gistingu í Fálkafelli

Aldur: dróttskátar

Lengd: Sólarhringur. ATH. flokkurinn gæti misst af annarri dagskrá.

Lagt af stað um kvöldið daginn áður og gist í skátaskálanum Fálkafelli. Um morguninn er lagt á Súlur og báðir tindar fjallsins sigraðir; Fremri-Súlur og Syðri-Súlur. Rómantík og rökkurró í skátaskála!

 

ÚT #14 -Valhöll

Aldur: dróttskátar

Lengd: Sólarhringur. ATH. flokkurinn gæti misst af annarri dagskrá.

Víkingarnir trúðu því að þeir sem féllu í bardaga færu til Valhallar sem var höll Óðins. Bardagamennirnir kölluðust þá einherjar. Valhöll var spennandi staður fyrir víkinga, þar var barist á daginn en á kvöldin risu allir upp aftur og átu og drukku til að skemmta sér. Valhöll var gullbjört, þakin spjótum og skjöldum að innan og brynjur lágu um alla bekki. Skátaskálinn Valhöll er kannski ekki eins íburðarmikill, en samt frábær staður til þess að dvelja eina nótt og fá örlítinn frið frá mótshaldinu. Falleg ganga yfir í skátaskálann Valhöll þar sem flokkurinn eyðir nóttinni með öðrum hressum dróttskátum.

 

ÚT #15 - Glerárdalur – Finnastaðadalur

Aldur: dróttskátar

Lengd: Sólarhringur. ATH. flokkurinn gæti misst af annarri dagskrá.

Gengið inn Glerárdal fyrri daginn og gist í skálanum Lamba. Daginn eftir er gengið upp að skarði sunnan við Kerlingu og þar er komið efst í Finnastaðadal. Dalnum er fylgt niður í Eyjafjörð og komið við í Holtseli í ís eftir góða göngu. Krefjandi gönguferð.

 

ÚT #16 - Skýli í skógi

Aldur: dróttskátar

Lengd: Sólarhringur. ATH. flokkurinn gæti misst af annarri dagskrá.

Flokkurinn skellir sér í survivor-útilegu yfir eina nótt. Flokkurinn reisir sér skýli, eldhúsaðstöðu og fleira í skóginum og gistir síðan þar um nóttina. Hefur þú það sem til þarf til þess að lifa af?

 

ÚT #17 - Fuglaskoðunarferð

Aldur: dróttskátar

Lengd: Sólarhringur. ATH. flokkurinn gæti misst af annarri dagskrá.

Rómantískur fuglasöngur og fagur næturhiminn. Gengið að kvöldi til yfir gömlu brýrnar við Eyjarfjarðaránna. Tjöldum slegið upp við ósa árinnar og fylgst með mögnuðu fuglalífinu og kyrrðinni um kvöldið.

 

ÚT #18 - Akureyri - Mývatn

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 8-9 klst. ATH. flokkurinn gæti misst af annarri dagskrá.

Verð: 14100 kr og 7050 (12-15 ára)

Skoðunarferð um Mývatnssveitina, fyrsta stopp er við Goðafoss, Skútustaðagígar. Hádegishlé í Reykjahlíð og eftir hádegishléið er farið í Dimmuborgir og Grjótagjá. Þaðan er farið austur yfir Námaskarð að Kröflu og að sprengigígnum Víti. Hverarönd eftir það og endað í jarðböðunum áður en haldið er tilbaka til Akureyrar.

 

ÚT #19 - Hápunktar norðursins

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 10 klst. ATH. flokkurinn gæti misst af annarri dagskrá.

Verð: 21000 kr og 9450 (12-15 ára)

Skoðunarferð um Mývatnssveitina og hvalaskoðun. Fyrsta stopp er við Goðafoss, Skútustaðagígar skoðaðir og þaðan er farið í Dimmuborgir í stutta göngu um sérstakar hraunmyndannir. Eftir stutt stopp í Reykjahlíð er ekið sem leið liggur til Húsavíkur þar sem farið er í hvalaskoðunarbátinn. Siglingin tekur um 3 klukkustundir. Lagt af stað til Akureyrar kl. 17.00

 

ÚT #20 - Dettifoss, perlur norðursins

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 11 klst. ATH. flokkurinn gæti misst af annarri dagskrá.

Verð: 18700 kr og 9350 (12-15 ára)

Helstu perlur norðursins eru skoðaðar í þessari ferð. Fyrsta stopp er við Goðafoss og frá honum er farið í Skútustaðagíga. Eftir skoðunarferð um gervigígana er farið í Dimmuborgir en margar sérstakar hraunmyndanir gefst gestunum kost á að virða fyrir sér í stuttri skoðunarferð. Eftir stutt stopp í Reykjahlíð (nestistopp) ef farið austur yfir Námaskarð og upp að Hverarönd. Frá Hveraröndinni er farið að Dettifoss, einum aflmesta fossi Evrópu. Frá honum er ekið niður með Jökulsá og niður í Ásbyrgi með stuttu stoppi í Vesturdal og Hljóðaklettum. Eftir stopp í Ásbyrgi er haldið aftur til Akureyrar.

 

ÚT #21 - Lofthellir

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 8 klst. ATH. flokkurinn gæti misst af annarri dagskrá.

Verð: 26500 kr og 13250 (0-12 ára)

Undraheimur ís og myrkurs. Lofthellir er í Mývatnssveit, ekið er sem leið liggur frá Akureyri í Mývatnssveitina þar sem keyrt er meðfram Hverfjalli (Hverfell) og að rótum Hvannfells. Eftir um 20 mínútna göngu er komið að Lofthelli. Í Lofthelli er að finna sérkennilegar skúlptúra myndaðir af ís, því sannkallaður undraheimur ís og myrkurs. þessi ferð er ekki fyrir ung börn, fólk með innilokunarkennd og verður að vera í sæmilega góðu formi.

 

ÚT #22 - Askja

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 14 klst. ATH. flokkurinn gæti misst af annarri dagskrá.

Verð: 23000 kr og 11500 (0-11 ára)

Tilvalið tækifæri til að skoða hálendið. Farið er í Öskju sem er sigdæld í megineldstöðinni Dyngjufjöllum og miðja eldstöðvakerfis með mörgum gossprungum. Öskjuvatn er í auðausturhorninu og er dýpsta stöðuvatn landsins um 200 m á dýpt. Víti er sprengigígur sem varð til 1875 og er að jafnan yfir 30°C heitt, vinstælt er að baða sig á þessum stað svo gott er að koma með sundföt. Nauðsynlegt er að taka með sér nesti fyrir allan daginn og hlý föt þar sem veðrið getur breyst ansi hratt og góða skó.

 

ÚT #23 - River Rafting

Aldur: drótt, rekkar/róver

Lengd: 6 klst. 

Verð: 15900 kr

Rafting í Vestari jökulsá. Siglt er um stórbrotið gljúfur Vestari jökulsárinnar og fram hjá heitri uppsprettu þar sem um 80°c heitt vatn flæðir ofan í jökulkalda ána. Stoppað er þar sem fólki er boðið upp á að stökkva ofan af 4 m háum kletti fyrir þá sem vilja blotna meira.

 

Landsmót skáta 2014 - Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, 110 Reykjavík

© 2013 Bandalag íslenskra skáta

bottom of page