top of page

Fortíð

 

Fortíðin hefur að geyma sögu mannkyns, sögu skáta, sögu flokksins og allt sem hefur gerst til þess að leiða okkur að þeim stað sem við erum á núna. Á fortíðartorginu fær flokkurinn tækifæri til að upplifa skátastarf fyrri tíma, lífstíl forfeðra okkar og -mæðra og flakka aftur í tímann.

 

Hér gefur að líta þau dagskrártækifæri sem flokknum býðst í fortíðinni:

 

FOR #01 - Kveikjum eld

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 90 mín

Það var sannkölluð bylting þegar mannkynið lærði að kveikja eld af sjálfsdáðum. Lærið að kveikja og beita eldi með fornum, frumstæðum og framandi leiðum. Flokkurinn gerir tilraunir með ýmis konar tæki og áhöld og reynir að kveikja eld með sem flestum leiðum.

 

FOR #02 - Bogi og örvar

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róvar

Lengd: 150 mín

Setjið ykkur í spor Hróa Hattar og lærið að skjóta af boga. Fálkar og dróttskátar fá leiðsögn í að beita boga, rekkar og róverskátar smíða eigin boga og fá kennslu í að beita honum.

 

FOR #03 - Símkerfi

Aldur: fálkar, drótt, rekkr/róver

Lengd: 90 mín

Hvernig var lífið fyrir tilkomu sms, facetime og gsm-dreifikerfa? Setjið upp símalínur og eigið samskipti úr fjarska, Krefjandi verkefni sem krefst samvinnu og snjalla lausna.

 

FOR #04 - Skylmingar

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 120 mín

Fræðist um bardagalistir víkinga og upplifið grimmileg átök fyrri alda. Hér er gott tækifæri til að læra nýja og orkufreka leiki auk þess að slást með sverðum!

 

FOR #05 - Fornleifar

Aldur: fálkar, drótt, rekka/róver

Lengd: 150 mín

Indíana Jones setti ÆÐI í fornleifafrÆÐI! Grafið upp minjar frá víkingaöld og ljóstrið upp leyndarmálum fortíðar.

 

FOR #06 - Útieldun

Aldur: fálkar, drótt, rekka/róver

Lengd: Lærið nýjar leiðir til að elda í náttúrunni auk þess að enduruppgötva þær allra elstu. Hér má finna uppskriftir frá miðöldum og furðuleg eldhúsáhöld.

 

FOR #07 - Leður

Aldur: fálkar, drótt, rekka/róver

Lengd: 150 mín

Gefið ímynduunaraflinu lausan tauminn! Framleiðið listaverk úr leðri, hér er margt í boði, allt frá pyngjum til skátahnúta

 

FOR #08 - Þæfing

Aldur: fálkar, drótt, rekka/róver

Lengd: 150 mín

Íslenska sauðkindin hefur gefið okkur margt, ull, kjöt og húshita. Þæfið allskonar gagnlega hluti úr íslenskri ull, hatta, töskur og sokka!

 

FOR #09 - Jurtaiðja

Aldur: fálkar, drótt, rekka/róver

Lengd: 120 mín

Stórframleiðsla á smyrslum, seyðum og lækningarjurtum. Notast er við Íslenskar jurtir úr nágrenninu. Einstakt tækifæri til að fræðast um frumstæðar aðferðir til lækningar og búa til smyrsl sem læknar hælsærið eftir gönguskóna eða sólbrunann á nefinu.

 

FOR #10 - Kukl

Aldur: drótt, rekkar/róver

Lengd: 90 mín

Hér er tækifæri til að læra allt um spádóma. Lófalestur, tarrot, telauf og kristalskúlur. Ljóstrið upp framtíð flokksins og nýtið ykkur vitneskjuna til að vinna landsmótið.

 

FOR #11 - Valslöngvuvatnsstríð

Aldur: Dróttskátar og eldri.

Lengd: 150 mín

Beitið verkfræðinni og súrrið saman valslöngvu sem þið síðan notið til að etja kappi við mótherja ykkar. Vatnsblöðrum verður þeytt fram og til baka þar til annar flokkurinn liggur í valnum.

 

 

FOR #12 - Leikir að víkingasið

Aldur: fálkar, drótt, rekka/róver

Lengd: 120 mínútur

Víkingarnir lifðu sannarlega fjörugu lífi. Lærið nýja og skemmtilega leiki að víkinga sið.

 

FOR #13 - Merkjasendingar

Aldur: fálkar, drótt, rekka/róver

Lengd: 120 mín

Sendið merki ykkar á milli með fjölbreyttum aðferðum, reykmerki, mors og semafore eru ekki einu aðferðirnar til að senda skilaboð, aukastig fyrir þá sem mæta með bréfdúfu.

 

FOR #14 - Mold og grjót

Aldur: fálkar, drótt, rekka/róver

Lengd: 150 mín

Torf og grjót, upp í mót. Skerið torf og hlaðið höll. Verkefni sem stendur yfir allt mótið, að lokum mun rísa glæsilegur torfbær.

 

FOR #15 - Fjársjóður

Aldur: fálkar, drótt, rekka/róver

Lengd: 150 mín

Finnið forna fjársjóði í dularfullum skógi með því að nýta kort og hugvit. Felið svo fjársjóð til að hindra samkeppnisflokkana.

 

FOR #16 - Mannréttindi og Alþingi

Aldur: drótt, rekka/róver

Lengd: 120 mín

Búið til réttarhöld að hætti víkinga og endurskapið alþingi til forna. Refsingar við lagabrotum, mannréttindi og deilur. Er þrælahald réttlætanlegt?

 

FOR #18 - Rúnir

Aldur: fálkar, drótt, rekka/róver

Lengd: 90 mín

Fræðist um hin fjölmörgu rúnastafróf og merkingu þeirra. Þáttakendur rista rúnir og gera rúnaspil.

 

FOR #19 - Galdrar

Aldur: fálkar, drótt, rekka/róver

Lengd: 90 mín

Galdraseyði og galdrastafir. Hvernig virkar Ægishjálmur og Ginfaxi? Leggjið hvort annað í álög og leggið bölvun á skátaforingjann, eða beitið ástargöldrum.

 

FOR #20 - Prímusagerð

Aldur: drótt, rekka/róver

Lengd: 150 mín

Gerið ykkar eigin prímus!

 

FOR #21 - Tjaldbúðir

Aldur: fálkar, drótt, rekka/róver

Lengd: 90 mín

Setjið upp tjaldbúðir fortíðarinnar með A-tjöldum og trönubyggingum. 

 

FOR #22 - Villidýraveiðar

Aldur: fálkar, drótt, rekka/róver

Lengd: 150 mín

Smíðið gildru og leggið hana fyrir óargakanínurnar sem fyrirfinnast á mótsvæðinu og í kring. Kanínuathvarf verður sett upp og veiddum kanínum safnað saman yfir mótið. Rekkar og róverskátar læra af fyrstu hendi hvernig á að matreiða villta kanínu. 

 

 

FOR #23 - Kvæði

Aldur: dróttskátar og eldri.

Lengd: 90 mínútur

Setjið ykkur í spor Egils Skallagrímssonar eða Látra-Bjargar og látið röddina berast. Kveðið kvæði, bæði forn og ný undir handleiðslu vanra kveðara.

 

 

Landsmót skáta 2014 - Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, 110 Reykjavík

© 2013 Bandalag íslenskra skáta

bottom of page