
Framtíð
Framtíðin er spennandi aragrúi af aðstæðum sem við getum vart ímyndað okkur! Heimurinn hefur breyst hratt síðustu áratugi og mun bara breytast hraðar á næstu árum. Á framtíðartorginu færð þú tækifæri til að ferðast fram í tímann og takast á við tryllt ævintýri framtíðarinnar!
FRA #01 - Týndur í framtíðinni!
Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver
Lengd: 90 mín
Hvað ber framtíðin í skauti sér? Hér fær flokkurinn tækifæri til að læra á GPS tæki og taka 90 mínútna skemmtilegt ferðalag inn í framtíðinna.
FRA #02 - GPS geimferðalag!
Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver
Lengd: 120 mín
Hvað er bak við ystu sjónarrönd? Hér fær flokkurinn tækifæri til að ferðast út i geim og mun nota gps tæki til að villast ekki. Ferðalagið mun taka 120 mínútur og verður óhætt að segja að flokkurinn þurfi að kljást við mörg afar furðuleg og flókin verkefni á leiðinni.
FRA #03 - GPS tímaflakk
Aldur: drótt, rekkar/róver
Lengd: 150 mín
Hér fær flokkurinn tækifæri til að kafa dýpra í GPS tæknina og undírbýr sig af kappi fyrir framtíðar ferðamennsku. Farið verður í grunnþætti rötunnar að hætti björgunarsveitanna. Flokkurinn lærir að færa gögn inn í GPS og teikna kort út frá þeim. Fyrir þá sem vilja verða GPS-meistarar!
FRA #04 - SciFi ljósmyndasögugerð
Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver
Lengd: 120-180 mín
Látið hugan reika og ímyndið ykkur hvernig framtíðin lítur út árið 2050 eða 3078! Í þessum pósti gefst flokknum tækifæri til að búa til teiknimyndasögu sem lýsir framtíðinni. Í boði verða flott teiknimyndasöguforrit, myndavélar, andlitsmálning, ,,special effects”-förðunarvörur og allskyns drasl! Flokkurinn fær svo að prenta út söguna í lok verkefnisins.
FRA #05 - Tæknilegó
Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver
Lengd: 90 mín
Langar þig að kubba? í þessum pósti verður svo mikið magn af tæknilegoi að þú getur kubbað allt sem þig hefur dreymt um að kubba! Róbóta, krana, bíla eða jafnvel framtíðina.
FRA #06 - 3D bíó. Fake it ‘till you make it
Aldur: drótt, rekkar/róver
Lengd: 150 mín
Ók. Landsmótið hafði ekki efni á að kaupa þrívíddarkvikmyndavélar en þess í stað fáið þið að læra að búa til gerviþrívíddarbíómyndir án þess að eiga trylltar myndavélar sem kosta milljónir.
FRA #07 - MakeyMakey!
Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver
Lengd: 60 mín
MakeyMakey er tæki sem gerir það kleyft að tengja tölvuna við næstum því hvað sem er. Búum til hljóðgervla úr ávöxtum! Gerum skátaleikina rafmagnaða! Spilum Pac-Man Í ALVÖRUNNI!
FRA #08 - Bálköstur framtíðarinnar
Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver
Lengd: 60 mín
Hefur það hvarflað að þér að kveikja bál með laser eða eldfærum að eigin vali?Þegar bálið er kveikt færðu svo að gæða þér á pönnsum sem þú útbýrð sjálfur.
FRA #09 - Loftsteinaógn
Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver
Lengd: 90 mín
Risastór loftsteinn stefnir á ógnarhraða á jörðina. Jarðarbúar missa sig í skelfingu en örfáir vaskir skátar hefja smíði á eldflaug sem getur skotið loftsteininum af braut.Reynið ykkur við smíði á geimflaug og fáið að skjóta henni á lofsteininn ógnvænlega!
FRA #10 - Óvissupóstur Radíóskáta I
Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver
Lengd: 90 mín
Hver kannast ekki við Radíóskátana og þeirra smíðapósta? Síðustu landsmót hefur þú varla verið skáti á meðal skáta nema þú skartir álfi með lýsandi augum eða varðeldahálsmeni sem blikkar. Hver veit hvað verður í boði í ár? Bluetooth headset? Þinn eigin snjallsími?
FRA #11 - Óvissupóstur Radíóskáta II
Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver
Lengd: 120 mín
Hver kannast ekki við Radíóskátana og þeirra smíðapósta? Síðustu landsmót hefur þú varla verið skáti á meðal skáta nema þú skartir álfi með lýsandi augum eða varðeldahálsmeni sem blikkar. Hver veit hvað verður í boði í ár? Bluetooth headset? Þinn eigin snjallsími?
FRA #12 - Óvissupóstur Radíóskáta III
Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver
Lengd: 150 mín
Hver kannast ekki við Radíóskátana og þeirra smíðapósta? Síðustu landsmót hefur þú varla verið skáti á meðal skáta nema þú skartir álfi með lýsandi augum eða varðeldahálsmeni sem blikkar. Hver veit hvað verður í boði í ár? Bluetooth headset? Þinn eigin snjallsími?
FRA #13 - Skátadulkóðun
Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver
Lengd: 90 mín
Leynileg stofnun sem veit allt um allt og alla er á hælum skátaflokksins! Lærið að beita bolabrögðum alvöru dulkóðunar til að gera skilaboðin ólæsileg fyrir aðra en flokksmeðlimi!
hQEMA4Sy0rV7OOXBAQgArcfsAPLnLiapdDIDo35REpCRUQ65ahI3O4oiBUXs5fDWa7Efx8qYJ10MWDX0RLPImj9orjIdbDILw+94e2BUYhC9MUGD+uyIquf2uGYP3kspYOGIkiyTrrfdcvsTmPmUOswMU4xs3BlpCfxxT4AnVilSZJWdEiFRsNzlhUeJW+Va
Skátarnir læra grundvallaratriðin í svokölluðum public-key cryptography.
FRA #14 - Kolefnisjöfnun
Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver
Lengd: 90 mín
Reynt verður að reikna út hve mikið hver flokkur þarf að planta mikið til að Kolefnisjafna sína rútuferð. Kenndir verða einfaldir útreikningar, sem nýtast einnig eftir landsmótið og skátinn getur notað áfram, t.d. til að kolefnisjafna ferðalög fjölskyldunnar. Eins verður farið í grunnatriði markvissrar Skógræktar. Skátarnir kolefnisjafna að lokum för sína á mótið með því að planta trjám.
FRA #15 -Hvað ber framtíðin í skauti sér? -Scenario Planning
Aldur: drótt, rekkar/róver
Lengd: 90 mín
Hvernig verður heimsmyndin eftir 20 ár? Lærðu að búa til mismunandi heimsmyndir framtíðarinnar með því taka hina ýmsu þætti með í myndina.
FRA #16 - Tölvuleikjaforritun
Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver
Lengd: 150+
Gerið ykkar eigin tölvuleiki! Lærið grunnatriðin í forritun og takið fyrstu skrefin í átt að glæstri framtíð í tölvuleikjagerð. Hver þarf Playstation 5 þegar allt sem þið þurfið er smá hugvit og örlítil þekking!
FRA #17 - Dr. Who
Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver
Lengd: 90 mín
Skátar þurfa líka að chilla! Poppum og horfum á Dr. Who!
FRA 18 - Vatnsrafhlaða
Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver
Lengd: 60 mín
Eru hamstrarnir búnir að hlaupa í hlaupahjólinu í alla nótt? Eigið þið fullt af umfram raforku? Lærið að búa til rafhlöðu úr vatni!
FRA #19 - Geimskrímslaslysaförðun
Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver
Lengd: 90 mín
Hefur þú séð töff sár? Heldur þú að sár líti eins út á öðrum vetrarbrautum? Ætli sár hjá geimverum líti eins út og hjá okkur eða eru þær með grænt blóð?Skátarnir fá tækifæri til þess að útbúa mjög raunveruleg sár sem koma til með að blekkja hvern sem er.
FRA #20 - Vetrarbrautin í nærmynd
Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver
Lengd: 60 mín
Hefur þig dreymt um að leggjast niður í kyrrð og ró og sjá vetrarbrautina birtast fyrir framan þig? Hefur þú séð öll stjörnumerkin á himninum? Skátum gefst einstakt tækifæri til þess að fá leiðsögn um himingeiminn og sjá stjörnurnar í nærmynd.
FRA #21 - Fæðuöflun framtíðarinnar
Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver
Lengd: 120 mín
Fræðsluganga um svæðið, ásamt tilsögn um hvað væri hægt að gera til að verða sjálfstæðari í fæðuöflun í framtíðinni. “Slow Growin’ Fast-Food”. Skátinn lærir að þekkja hvað í náttúrunni er hægt að nýta sem fæðu, bæði fyrir mannfólk og húsdýr.
FRA #22 - Lífsmíði
Aldur: drótt, rekkar/róver
Lengd: 120 mín
Hefur þig aldrei langað til að skapa nýtt líf frá grunni? Farið verður í grundvallaratriði lífsmíða. Skátarnir læra að einangra erfðaefnið úr sér og fá innsýn í starf lífefnafræðinga.
FRA #23 - Geimkönnuðir
Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver
Lengd: 90-120 mín
Eruð þið orðin leið á Jörðinni? Viljið þið nýja plánetu til að búa á? Komið og finnið ykkar eigin plánetu í sérstakri plánetuleitarstöð!
FRA #24 - Framíðin í ljósmyndun
Aldur: drótt, rekkar/róver
Lengd: 90 mín
Hefur ykkur einhverntíma dreymt um að fá að leika ykkur, bókstaflega, með græjur úr framtíðinni?Það vill svo til að framtíðin er mætt á svæðið! Komið og leikið ykkur með ljósmyndavélar úr framtíðinni!
FRA #25 - Fatahönnun framtíðarinnar
Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver
Lengd: 90 mín
Verða framtíðarfötin miklu tæknilegri en fötin í dag? Hvernig verður samspil klæða og tækni? Hannaðu framtíðarklæðnað. Afraksturinn verður sýndur á tískusýningu.
Landsmót skáta 2014 - Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, 110 Reykjavík
© 2013 Bandalag íslenskra skáta
