
Akureyrarval
Akureyrardagurinn er spennandi dagur þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Deginum er þrískipt; allir flokkar fara í sund, leysa einn póstaleik og velja sér svo valverkefni eftir áhugasviði.
Póstaleikir
Hver flokkur velur sér einn póstaleik þar sem flokkurinn fær að flakka um Akureyri og kynnast perlum bæjarins.
PÓS #01 - Skáti er náttúruvinur
Akureyri er þekkt fyrir falleg útivistarsvæði, skrúðgarða og mikla sögu lista og skálda. Þessi póstaleikur er fyrir þá sem vilja leysa skemmtileg verkefni í fallegu umhverfi, þar sem fuglarnir syngja og blómin brosa og kynnast í leiðinni broti af sögu bæjarins.
PÓS #02 - Skáti er tæknitröll
Á Akureyri er mikill áhugi á tækni og tryllitækjum og hefur verið lagður mikill metnaður í að varðveita ýmsa fararskjóta af öllum stærðum, ásamt vélum og tækjum sem áður voru notaðar við framleiðslu og iðnaðar. Þessi póstaleikur er fyrir þá sem vilja skoða söguna í gegnum tækin og tæknina.
PÓS #03 - Skáti er hjálpsamur
Á Akureyri er starfrækt öflugt slökkvilið og dugmikil björgunarsveit. Þessi póstaleikur er fyrir þá sem vilja leysa verkefni sem reyna á líkamlegt og andlegt atgerfi og kynna sér í leiðinni starfsemi þeirra sem bjarga er aðrir lenda í vanda.
PÓS #04 - Skáti er orkubolti
Á Akureyri eru ýmis tækifæri til þess að hressa sig við og liðka lið. Þessi póstaleikur er fyrir þá sem vilja skoða sig um á Akureyri og hreyfa sig í leiðinni, spreyta sig á léttum þrautum og reyna á líkamlegt atgervi.
PÓS #05 - Skáti er listunnandi
Akureyri er þekkt fyrir mikið lista- og menningarlíf. Í þessum póstaleik fá þátttakendur færi á að leysa ýmis verkefni í listaumhverfi bæjarins. Þarna fær sköpunargáfan að njóta sín í samvinnu við aðra skáta og vegfarendur.
PÓS #06 - Skáti er samvinnufús
Á Akureyri eru starfandi ýmis félagasamtök og hjálparsamtök. Í þessum póstaleik fær flokkurinn að vinna skemmtileg verkefni með það í huga að láta gott af sér leiða. Þarna gefst tækifæri á að kynnast starfsemi hjálparsamtaka og læra um endurnýtingu og náttúruvernd.
Valverkefni
AK #01 - Parkour
Parkour er stórskemmtileg íþrótt sem felur í sér mikla hreyfingu og ögrandi áskoranir. Boðið verður upp á skemmtilegt parkour námskeið í íþróttahúsi á Akureyri þar sem kennari mun leiða skátana í allan sannleikann um þessa skemmtilegu íþrótt. Skátarnir munu fá að spreyta sig á stökkum og hoppun í öruggu umhverfi.
AK #02 - Tjaldbúð í anda Tryggva Þorsteinssonar
Hvað gerðu skátar í gamla daga? Hvernig tjölduðu þeir, hvernig elduðu þeir, hvað sungu þeir og í hvernig búningum voru þeir? Taktu þátt í lifandi skátasýningu við Amtbókasafnið, þar sem félagar úr St.Georgsgildunum á Akureyri leyfa þér að taka þátt í skátastarfi eins og það var fyrir hálfri öld.
AK #03 - Vertu viðbúinn!
Langar þig að kynnast sjálfsvarnaríþrótt? Hér er tækifæri til að læra nokkur brögð, snúninga og spörk og jafnvel einhver orð á framandi tungumáli.
AK #04 - Leiklistarævintýri
Skemmtilegt örnámskeið í leiklist þar sem skátar fá að spreyta sig á spunaleik. Leikarar munu fræða skátana um glamúr leikhúslífsins og jafnframt segja frá sögu leiklistar á Eyjafjarðarsvæðinu.
AK #05 - Rennt fyrir fisk
Um aldir hafa Akureyringar rennt fyrir fisk á pollinum til að ná sér í soðið. Boðið verður upp á skemmtilegt veiðinámskeið þar sem skátar renna fyrir fisk. Skátarnir læra að gera að aflanum og hvernig sé best að elda fiskinn. Boðið verður upp á smakk ef veiðin er dræm.
AK #06 - Brú milli kynslóða
Hvað er líkt með eldri borgurum og börnum? Hvað má græða á brú milli kynslóðanna? Skemmtileg heimsókn á elliheimili þar sem skátarnir fræðast um liðinn tíma og velta fyrir sér lífsgátunni. Hver veit nema skátar búi á elliheimilum.
AK #07 - Sjósund
Hvað er meira hressandi en að skella sér til sunds í frískandi hitastigi Norður-Atlandshafsins? Prófið að dýfa ykkur útí og sjá hvað þið endist lengi, kannski blundar framtíðar sjósundgarpur í þér?
AK #08 - Kajaksigling
Siglingaklúbburinn Nökkvi mun vera með kajaksiglingar fyrir fríska skáta sem vilja ævintýri. Kennd verða undirstöðuatriði í kajakróðri og að sjálfsögðu fara allir í siglingu. Hver veit nema sæskrímsli leynist í sjónum.
AK #09 - Netagerð
Fræðst um netagerð og viðgerðir á netum, en netagerð er ein af undirstöðum sjávarútvegs. Skátar prófa netagerð með hjálp leiðbeinanda. Skátar þurfa að kunna að bjarga sér við ólíklegustu aðstæður svo hver veit nema þetta eigi eftir að nýtast. Það er ekki slæmt að útbúa net í hengirúm þegar maður vill slaka á.
AK #10 - Lautarferð
Lautarferð á leynastaði, með nesti og í góðum félagsskap. Kubbur og kósíheit.
AK #11 - Grín, fugl, pútt , örn og skolli
Í íþróttahúsinu á Akureyri er æfingarsvæði fyrir þá sem vilja bæta golftæknina þá mánuði sem golfvöllurinn er undir snjó. Hér geta skátarnir lært undirstöðuatriðin í golfi , púttað á innibraut og undirbúið sig fyrir 18 holurnar.
AK #12 - Leggðu hönd á pensil
Samfélagsverkefni fyrir skáta sem vilja láta gott af sér leiða. Verkefnið felst í að mála girðingu til að prýða bæinn. Skátarnir fá leiðsögn fagmanns um málningarvinnu. Það þurfa allir að kunna að beita pensli.
AK #13 - Listalíf
Hvað væri lífið án listar? Listin er spegill samfélagins. Njóttu listarinnar á Listasafni Akureyrar með leiðsögn fagfólks.
AK #14 - Smelltu af
Hefurðu næmt auga fyrir fegurð? Lærðu að fanga myndir undir leiðsögn ljósmyndar. Það er að mörgu að huga þegar maður smellir af; hlutföll, innrömmun, ljósop, fókus og form. Taktu myndir sem varðveita minningar þínar af landsmóti að eilífu!
AK #15 - Ertu í rusli?
Við eigum bara eina plánetu. Samt erum við smátt og smátt að fylla hana af rusli og mengun. Skoðaðu endurvinnslustöð og taktu þátt í sniðugum og fræðandi sopflokkunarleik.
AK #16 - Bolsíur og molar.
Hvernig verður brjóstsykur til? Er hægt að sjóða sér nammi í potti? Taktu þátt í brjóstsykursgerð, þar sem þú getur ráðir lögun, bragði og litum á þínu eigin gotti.
AK #17 - Löggulíf
Hvað þarftu að gera til að verða lögga? Komdu í heimsókn á lögreglustöðina og grennslastu fyrir um það hvernig laganna verðir berjast við glæpamennina. Passaðu þig bara að gleymast ekki inní fangaklefa.
AK #18 - Slökkviliðið
Þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Komdu og kynntust hetjunum okkar í slökkviliðinu sem bæði slökkva elda og hlúa að slösuðum á sjúkrabílunum. Ert þú efni í næstu hetju?
AK #19 - Orka jarðar
Hvaðan kemur heita vatnið? Hvernig verður rafmagnið til? Heldurðu að lífið væri ekki talsvert mikið erfiðara ef þessa nyti ekki við? Við skulum komast að því saman hvaðan þessir mikilvægu hlutir koma og hvernig þeim er skilað til okkar.
AK #20 - Minjasafnið og Nonnahús
Hvernig var líf fólks í gamla daga? Heimsókn í Minjasafn Akureyrar þar sem hægt er að skoða muni og sögu tengd Eyjafjarðarsvæðinu. Nonnahús er heimili rithöfundarins Jóns Sveinssonar í upprunalegri mynd. Þar er jafnframt sýning á verkum tengdum bókum hans. og starfsferli
AK #21 - Bíó
Flokkurinn bregður sér inn úr blíðunni og horfir á áhugaverða heimildarmynd.
AK #22 - Lystigarðurinn
Lystigarðurinn er frábær skrúðgarður á suðurbrekkunni sunnan Menntaskólans og er hann rekinn af Akureyrarbæ sem grasagarður og skrúðgarður. Skáti er náttúruvinur! Þar má fræðast um flóru Íslands, innflutning á harðgerðum plöntum sem eftirsóknarvert er að rækta á Íslandi auk þess að vera almenningsgarður sem nýtist fólki til fróðleiks og skemmtunar.
AK #23 - Saga Akureyrar
Helgi ,,magri” Eyvindarson var fyrsti landneminn á Akureyrarsvæðinu. Af hverju skyldi hann hafa verið kallaður ,,magri”? Fræðstu um sögu Akureyrar.
Landsmót skáta 2014 - Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, 110 Reykjavík
© 2013 Bandalag íslenskra skáta
