top of page

Nútíð

 

Nútíðin er skemmtileg hringiða mitt á milli fortíðar og framtíðar. Nútíðin er það sem þú ert að hugsa núna og gera núna, ekki það sem þig dreymdi um í gær og ekki það sem þú gerir á morgun. Lifðu í núinu!

NÚT #01 - Hljóðfæragerð

Aldur: fálkar, drótt, rekka/róver

Lengd: 90 mín

Hljóðfæri eru frábær. En það sem er frábærara en en hljóðfæri eru heimagerð hljóðfæri. Búðu til þinn eigin bassa, flautu eða hvað sem þig langar (eða google/youtube getur kennt þér).

 

NÚT #02 - Mósaík og flokkseinkenni

Aldur: fálkar, drótt, rekka/róver

Lengd: 120 mín

Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga og bleikar kýr sem dansa fram á nótt. Eða þú veist, flokkseinkenni eru skemmtilegt fyrirbæri, sérstaklega þegar efniviðurinn er fjölbreyttur. Mósaík-listaverkið ætlum við svo að hjálpast að við að skapa og skilja það svo eftir að Hömrum. Þetta verður eitthvað stórfenglegt.

 

NÚT #03 - Sushi

Aldur: drótt, rekkar/róver

Lengd: 120 mín

Fyrir nokkrum áratugum var matarmennign mjög staðbundin. Fólk endlaði bara úr því hráefni sem var til í nágrenninu og á Íslandi voru epli til dæmis aðeins fáanleg á jólunum. Núna hefur heimurinn minnkað svo um munað og sem dæmi um það má nefna að sushi er einn vinsælasti rétturinn á Íslandi í dag. Lærðu að rúlla sushi.

 

NÚT #04 - Sig og klifur

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 120 mín

Klifrið upp, sígið niður, frekar beisik. Alltaf jafn gaman. Sérstaklega fyrir lofthrædda!

 

NÚT #05 - Skyndihjálp og slysaförðun

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 90 mín

Langar þig að læra förðun sem nýtist á Hrekkjavöku? Og læra smá skyndihjálp í leiðinni? Hér læra skátarnir slysaförðun og búa til ýmiskonar sár og áverka úr ódýrum efnivið. Síðan læra skátarnir að búa um hin ýmsu sár á réttan hátt.

 

NÚT #06 - Rafsuðuskúlptúr

Aldur: drótt, rekkar/róver

Lengd: 150 mín

Hefur þú prófað að rafsjóða, hér fer fram grunnkennsla í rafsuðu. Síðan velja skátarnir sér efnivið og skapa sameiginlega grip sem þau taka svo með sér heim í skátaheimili og prýðir flokksherbergið.

 

NÚT #07 - Sófarötun

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 90 mín

Fyrir þá sem vilja sitja þar sem enginn hefur setið áður. Með GPS-tæki í hönd þurfið þið að rata á rétta staði, en gleymið ekki að taka sófann með, því það er ekki nóg að rata, heldur þarf líka að sitja. Takið mynd af ykkur og sófanum ykkar á réttum stað í kapphlaupi við tímann.

 

NÚT #08 - Minecraft-landsmót

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 90 mín

Spilar þú Minecraft? Nú er tækifærið til að skapa fyrirmyndar landsmótsumhverfi í Minecraft heiminum. Hver flokkur byggir og bætir við það sem komið er frá öðrum sem hafa verið á undan í póstinum.

 

NÚT #09 - DIY

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 120 mín

DIY eða Do it yourself er vinsælt og skemmtilegt internetæði sem flestir ættu að kannast við. DIY snýst um að það er alveg sama hvað það er, þú ættir að geta gert það sjálf/ur. Kanntu að bora? Kanntu að skipta um dekk? Ef svarið er nei ætturu að skella þér í DIY.

 

NÚT #10 - Sprengjubelti (Minesweeper)

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 90 mín

Nú reynir á útsjónarsemi flokksins! Hver kannast ekki við leikinn Minesweeper, sem fylgir með Windows-tölvum? Leikurinn gengur út á að finna sprengjur án þess að sprengja þær. Í landsmótsútgáfunni eru leikurinn þó ekki á tölvuskjá, heldur risastór á jörðinni!

 

NÚT #11 - Misskipting auðs og valds

Aldur: drótt, rekkar/róver

Lengd: 120 mín

Sumir fæðast ríkir. Aðrir fæðast fátækir. Sumir fæðast heilbrigðir. Aðrir kannski ekki. Fólk elst upp við misjafnar aðstæður og hefur misjöfn tækifæri. Í þessum dagskrárlið ætlum við að fara í leiki þar sem við kynnumst mismunandi tækifærum fólks í heiminum.

 

NÚT #12 - Projekt Polska

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 120 mín

Dzień dobry! 9.404 Íslendingar eru fæddir í Póllandi. Vafalaust átt þú því einhverja vini sem eru með pólskan bakgrunn. En hvað veistu um Pólland? Í Projekt Polska fær flokkurinn að læra að elda pólskan mat, læra nokkur orð á pólsku og fleira sem viðkemur pólskri menningu.

 

NÚT #13 - Útvarpsútsending

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 150 mín

Ertu með einstaklega góða útvarpsrödd? Flokkurinn fer í fjölmiðlasetrið og undirbýr útvarpsþátt, velur lög, viðmælendur, tekur upp viðtöl eða hljóðbrot og fær svo sinn eigin þátt útvarpi mótsins.

 

NÚT #14 - Blaðabrjálæði

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 120 mín

Flokkurinn fer í fjölmiðlasetrið og hittir þar ritstjórn mótsblaðsins. Flokkurinn velur sér viðfangsefni, tekur myndir og fullvinnur frétt sem fer í mótsblaðið, allt undir styrkri leiðsögn blaðamanna mótsblaðsins. Hvað er góð frétt og hvað er ekki góð frétt? Hvernig á að taka góðar myndir? Allt þetta í þessum skemmtilega pósti.

 

NÚT #15 - Kaffikaffikaffi

Aldur: rekkar+

Lengd: 120 mín

Íslendingar drekka roooooosalega mikið kaffi. Og þrátt fyrir að kaffibaunir séu ekki ræktaðar á Íslandi halda margir Frónbúar því fram að íslenskt kaffi sé það besta í heimi. Lærðu allt um baunir, bragð og brennslu. Fáðu að smakka íslenskt, nýbrennt kaffi og læra mismunandi uppáhellingaraðferðir.

 

NÚT #16 - Origami og japanskt letur

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 120 mín

Ætlar þú á heimsmót í Japan? Hvort sem þú ert búinn að bóka farið til Japan eða ekki þá er tilvalið að kynna sér betur japanska menningu með því að læra pappírslist og japanskt letur. Gerðu origami-listaverk og lærðu að skrifa nafnið þitt með katakana-letri.

 

NÚT #17 - Bókbinding

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 120 mín

Þó að margir eigi spjaldtölvur og lesi bara rafbækur þá er útgáfa bóka enn við lýði. Það er spurningin hvort bækur leggist af í framtíðinni… En ennþá vill fólk fá að handfjatla bækur, finna pappírslyktina og njóta þess að finna þyngd bókarinnar í kjöltu sér. Lærðu að binda bækur. Bókin getur verið minningabók frá landsmóti þar sem allir nýju vinir þínir kvitta, ævintýri sem þú semur, eða bara hvað sem er.

 

NÚT #18 - Spunaleikir

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 120 mín

Að vera eða ekki að vera, það er efinn! Finndu leikarann í þér og lærðu að spinna á staðnum. Kannski verður útkoman svo frábær að þið getið sýnt hana á stóra sviðinu?

 

NÚT #19 - Flugdrekaskátar

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 90 mín

Flugdrekar eru til alls kyns nýtir. Þeir eru fallegir og það er skemmtilegt að fljúga þeim. Sumstaðar er keppt í flugdrekaflugi, en þá eru strengirnir gerðir beyttir með glerbrotum þannig að auðvelt sé að slíta strengi annarra flugdreka. Sumstaðar voru flugdrekar líka notaðir í hernaði og það er jafnvel hægt að þurrka fötin sín á snúrunni á drekanum. Gerðu fallegan flugdreka.

 

NÚT #20 - Zumba

Aldur: drótt, rekkar/róver

Lengd: 90 mín

Zumba er ein vinsælasta líkamsræktaríþróttin í dag. Zumba sameinar suður-ameríska tónlist, poppsmelli og skemmtilega dansrækt. Taktu svolítið á því og lærðu skemmtileg zumba-spor. Eftir zumbað verður svo teygt vel.

 

NÚT #21 - Endurvinnslusköpunarstöðin

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 120 mín

Kanntu að gera veski úr límbandi? Klukku úr hljómplötu? Breyttu ruslahrúgu í töff hluti. Það er framtíðin!

 

NÚT #22 - Borgarblómarækt og blómasprengjur

Aldur: fálkar, drótt, rekkar/róver

Lengd: 90 mín

Borgir og bæjir eru orðnir heljarmalbikaðir. Á þessum pósti lærir þú að gera blómasprengjur sem þú getur skilið eftir þar sem þér finnst vanta smá líf og lit. Þú munt einnig fræðast um hvernig er hægt að stunda borgarblómarækt.

 

NÚT #23 - Slow Food

Aldur: drótt, rekkar/róver

Lengd: 150 mín

Fjölmargar tegundir dýra og jurta sem við nærumst á eru í útrýmingarhættu. Fyrir hundrað árum voru til að mynda 200 tegundir af þystilhjörtum, en nú eru bara örfáar eftir. Slow Food-hreyfingin notar náttúruvænar aðferðir, velur náttúruvænar vörur og eldar á náttúruvænan hátt. Við fáum sérfræðing í heimsókn, lærum um hreyfinguna og eldum saman.

 

Landsmót skáta 2014 - Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, 110 Reykjavík

© 2013 Bandalag íslenskra skáta

bottom of page