
Jón Ingvar, viðburðastjóri BÍS

Netfang: jon@skatar.is // Sími: 699-3642
Jón Ingvar hóf störf sem viðburðastjóri BÍS í maí 2013, en Jón er skátum vel kunnur. Hann hefur verið í ýmsum störfum á vegum BÍS sem sjálfboðaliði og starfsmaður. Jón Ingvar var fræðslustjóri BÍS 2003-2007 en hefur auk þess verið framkvæmdastjóri Landsmóta skáta 2002 og 2008, Nordjamb 2000 og 2003 og verkefnastjóri Roverway 2009.
Jón Ingvar hefur verið skáti frá unga aldri innan skátafélagsins Kópa og gegndi þar ýmsum foringjastörfum og Gilwell skáti 1996. Jón Ingvar var formaður dagskrárráðs BÍS 2009-2013, hann hefur setið í nefndum á vegum WOSM Evrópu frá 2005-2013 og verið hluti af IMWe teyminu frá 2003. Jón Ingvar er menntaður viðskiptafræðingur og stundaði framhaldsnám í Hollandi.
Sem viðburðastjóri BÍS starfar Jón m.a. með mótsstjórn Landsmóts skáta 2014 og ber ábyrgð á fjármálum mótsins gagnvart framkvæmdastjóra og stjórn BÍS.
Landsmót skáta 2014 - Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, 110 Reykjavík
© 2013 Bandalag íslenskra skáta
