top of page

Fríður Finna Sigurðardóttir, mótsstjóri Landsmóts skáta 2014

Netfang: fridurfinna@skatar.is // Sími: 866-3389

Fríður Finna starfar sem læknir á Landspítala Háskólasjúkrahúsi en undanfarin tíu ár stundaði hún nám og rannsóknir í heilbrigðisfræðum, fyrst sjúkraþjálfaranám við Háskóla Íslands í tvö ár, síðan nám í læknisfræði við Kaupmannarhafnarháskóla í sex ár og rannsóknarstörf í tvö ár. Áður hefur Fríður ma. starfað sem rekstrarstjóri fjölskyldugarðs í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, og sem aðstoðarhjúkrunar-fræðingur í Danmörku, auk launaðrar verkefnavinnu í sumarstörfum hjá BÍS.

Fríður vígðist sem skáti árið 1989 í skátafélaginu Eilífsbúum á Sauðárkróki og starfaði síðar með Vogabúum, seinna Hamri í Grafarvogi, Reykjavík. Hún hefur gegnt foringjastörfum sem flokks-, sveitar- og aðstoðarfélagsforingi, verið farararstjóri á fjöldamörg skátamót, innanlands og erlendis og unnið við skipulagning og framkvæmd alþjóðlegra viðburða BÍS. Fríður hefur tekið þátt í og leiðbeint á fjölda erlendra skátanámskeiða á vegum WAGGGS & WOSM undanfarin tíu ár og átti sæti í Evrópustjórn WAGGGS árin 2007-2010. Fríður Finna lauk Gilwell þjálfun Bandalags íslenskra skáta sumarið 1999.

 

Sem mótsstjóri Landsmóts skáta 2014 leiðir Fríður Finna mótsstjórn og ber ábyrgð á störfum hennar.

 

Landsmót skáta 2014 - Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, 110 Reykjavík

© 2013 Bandalag íslenskra skáta

bottom of page